Í bili..
Miðvikudagur, 2. desember 2009
Andvarpa og sturta niður með trega. Græt síðan af söknuði.
Hluti af mér farinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Gjaldþrot
Mánudagur, 6. júlí 2009
Gjaldþrot er orð sem við heyrum mikið af þessa stundina. Það er ömurlegt. Eftir að bankakerfið okkar skellti sér á bakið til þess eins að pirra mig út af því að ég var staddur í Svíþjóð á þeim tíma hefur ástandið versnað með hverjum mánuðinum. Ég get þó ekki kvartað yfir minni stöðu, enda þokkalega á mig kominn, eins og er í það minnsta.
Búsáhaldabyltingin var merkilegur hlutur. Þar komu menn saman með potta og pönnur til að mótmæla aðgerðarleysi og spillingu. Nokkuð vel af sér vikið, enda ástandið með öllu óþolandi. Menn að farast úr ákvarðanatökufælni og deilt um hvaða leið átti að fara. Ríkisstjórnin sleit samstarfi og boðað var til kosninga. Þetta vitum við. Kosningarnar leiddu til sigurs vinstri manna. Ágætt, hugsaði maður með sér. Hefði þó verið betra að sleppa við rauða sól.
Nú þegar þessi nýja ríkisstjórn hefur tekið við hefur hún gert lítið annað en að hækka skatta. Ótrúlegustu hlutir hafa verið skattlagðir og skattlagðir vel.
Ég er enginn hagfræðingur og ég lifi ekki í þeirri blekkingu að ég geti bjargað einhverju með þessum skrifum mínum og það þarf ekkert að vera að ég hafi rétt fyrir mér. Hins vegar get ég hreinlega ekki skilið hvernig skattahækkanir eigi að redda málunum.
Fyrir mér er þetta einfalt. Við erum í vandræðum út af því að við skuldum fáránlega mikinn pening og fyrirtækin í landinu eru illa sett. Hvað er hægt að gera þá? Að hækka skatta gefur okkur meiri pening, það er víst rétt en hvað lengi?
Með hækkun á sköttum á almenning og fyrirtæki minnkar neysla og þar af leiðandi minnkar gróði fyrirtækja. Fyrirtækin þurfa, líkt og almenningur, að borga meira af sínum hagnaði í skatt sem þýðir verri afkoma fyrirtækja. Þar sem mörg fyrirtæki á Íslandi eru mjög illa sett þurfa þau að borga eflaust stóran hluta af innkomu sinni á mánuði í lán sem þau skulda kemur það illa þegar innkoman minnkar, tala nú ekki um þegar eyðslan á mánuði eykst líka. Hvað líður langur tími þar til að fyrirtækið fer á hausinn?
Eins og ég segi, það getur vel verið að ég hafi rangt fyrir mér en ég hefði haldið að það væri vænlegra að reyna að hlúa að fyrirtækjum. Vinna í því að halda þeim gangandi og þar með tryggja innkomu með sanngjörnum sköttum. Þar með heldur fólk atvinnu og getur haldið áfram að eyða peningum og láta hjól atvinnulífsins snúast.
Mér leiðist það að fjölmiðlar, sem eru í eigu fólksins sem kom okkur í þessa stöðu, eru stútfullir af greinum um hvað þetta er allt öllum öðrum um að kenna heldur en þeim sjálfum.
Mér finnst það loðið.
Fólk flýr land í hrönnum þessa stundina. Búið að fá nóg af skattahækkunum, háum lánum og öðru kjaftæði. Hver er lausnin? Jú hækkum skatta meira.
Nei, ég er ekki hrifinn af þessari leið. Ég hefði frekar viljað innspýtingu inn í efnahagslífið og tryggja þar með að fyrirtækin í landinu geti borgað í það minnsta eitthvað inn í ríkissjóð. Betra að fá þúsund kall frá þúsund fyrirtækjum heldur en tvöþúsund kall frá hundrað fyrirtækjum.
Þannig sé ég þetta í það minnsta...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bíllinn minn...
Þriðjudagur, 30. júní 2009
Fáir halda jafn mikla tryggð við bílana sína og ég. Í minum huga var Njall Otkar, hvíta Toyotan mín líklegast besti bíll í heiminum. Eyddi engu, kvartaði aldrei og rauk alltaf í gang. Nema auðvitað þegar sætar busastelpur löbbuðu fram hjá... ég var í MA á þessum tímapunkti þannig að það er ekkert rangt við þessa setningu mína.
Auðvitað toppaði allt að hann var 4 gíra. Frábær bíll.
Síðan þurfti ég að huga að breytingu. Njallinn orðinn þreyttur og mér bauðst stórglæsilegur hjondæ á mjög svo viðráðanlegu verði. Ekkert mál, ég tók því.
Þetta var árið 2004, sólin skein ekki svo mikið þar sem það var vetur en bíllinn góður engu að síður. Fagurgrænn og á álfelgum. Eini gallinn var geislaspilarinn sem átti það til að ofhitna, fyrir vikið var keyptur nýr spilari sem svo sannarlega stóð fyrir sínu.
Hvert einasta ár bíð ég eftir því að bíllinn minn hætti að virka. Þetta er sú árgerð af hjondæ sem hefur hvað hæstu bilanatíðnina. Fyrir utan það að hjondæ eru ekki traustustu bílarnir í heiminum. Það breytir því þó ekki að ég skrölti enn á þessum blessaða bíl, með sín low profile dekk, álfelgur og "clip on" púströr, sem reyndar flettist inn og litla sogrörið kom í ljós þegar það var klesst aftan á hann hér um árið. Fyrir bíladagana gerði ég mig kláran í meting um bíla. Á síðasta ári lenti ég í einhvejrum eðal sleða sem fór að metast um bíla við mig. Hélt eflaust að ég væri að meina það þegar ég færði rök fyrir því að minn bíll væri flottari og betri en hans bíll.... hann var á einhverri eðal súkkulaðismátussumaskínu sem hefði bleytt hvaða bílvirkja sem er. Ég var á hjondæ. Ég tel mig hafa unnið þessar rökræður.
Að sjálfsögðu var ég að meina að hjondæinn væri besti bíll í heiminum.
Þessa bíladaga setti ég fullt af aukahlutum í bílinn minn eingöngu til þess að vera klár í rökræður. Það helsta sem ég setti var samlokugrill. Ætlaði alltaf að vinna rökræðurnar með því að benda á að minn bíll hefði samlokugrill.... kannski sem betur fer varð aldrei neitt af þessum rökræðum.
Núna í dag fór ég með bílinn í skoðun. Á síðasta mögulega degi fyrir stóru sektina. Bjóst hálf partinn við að fá endurskoðun þannig að ég var lítið að flýta mér. Auk þess sem það hafa verið fáránlega langar raðir síðustu daga fyrir utan Frumherja. Til að snúa á sleðana ætlaði ég að mæta korter í átta niður á Frumherja og vera fyrstur. Þar sem ég tafðist aðeins var ég kominn 08:04. Niður á Frumherja voru mættir 24 bílar í öllum stærðum og gerðum auk þess voru tvö mótorhjól. Frábært alveg. Ég lagði bílnum, fór inn á skrifstofu og borgaði fyrir skoðunina. Ég var níundi í röðinni, sem verður að teljast frábært miðað við þann bílaflota sem þarna var fyrir utan. Kom þá í ljós að margir höfðu bara farið í bílaröðina án þess að vera búnir að ná sér í miða.... KEMUR!
Hressandi eins og hálfstíma bið tók við í bílnum. Ég föndraði, litaði, klippti á mér neglurnar og samdi lag.
Loksins þegar kom að mér fylltist ég kvíða. Ekki var það jákvætt þegar skoðunarmaðurinn setti strax út á dekkið hjá mér. Ég vissi að einn boltinn í dekkinu væri bilaður, það væri gat á pústinu þannig að útblásturinn átti það til að skella sér í farþegasætið og bensíngjöfin er stundum skrítin. Ég svitnaði og svitnaði, leið pínu eins og það væri verið að fara yfir próf fyrir framan mig, próf sem ég giskaði á svörin í. Slepp ég með bullið eða ekki?
Örfáar athugasemdir voru gerðar og út keyrði bíllinn með glæsilegum "10" límmiða á númeraplötunni. Fögnuðurinn var gífurlegur og ég iðaði allur í sætinu.
Já maður er heppinn og óheppinn í lífinu. Ég er kannski óheppinn með lækna en mikið er ég heppinn með bíla.
Annars er öppin öll að koma til, farinn að geta hreyft mig smá og er bara nokkuð hress í lífinu þessa dagana. Er orðinn A týpa, sofna snemma og vakna fyrr. Eld hress strákur í nokkuð góðum málum bara.
Hef þetta ekki lengra.
Sjibbí!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
bíladagar...
Mánudagur, 22. júní 2009
Þeir eru búnir. Í gærkvöldi hrökktum við síðasta Selfoss súkkulaðistykkið út fyrir bæjarmörkin. Við athöfnina voru heykvísl og kyndlar notaðir. Þetta var stórglæsileg athöfn. Allir sem máli skiptu voru þarna. Hefðum jafnvel átt að hengja helvítið upp í hæsta tré.
Fékk að vita á fimmtudaginn að ég mætti byrja light training. Ekkert mál. Reyndar ekki séns fyrir mig að vera með light training þar sem ég er frekar þungur.... 9,5
Spurning hvort að ég hafi samt ofgert þetta light training. Þorstinn í form er ótrúlegur, yfirvinnur flestan þorsta. Er meira að segja orðinn A týpa út af þessu. Vakna hálf átta-átta alla morgna, líka um helgar. reyndar hafði þessi helgarvöknun mín eitthvað með það að gera að ég neitaði að taka þátt í þessu fíaskói sem bíladagar eru. Fékk frekar að hlusta á helvítin út um gluggann. Unaður að vera með svefnherbergi sem snýr út á Hrísalundsplanið. Var kominn með kúbein í hendina á tímabili.
Í það minnsta er ég búinn að drösla mér í gimmið síðustu daga. Líkami minn, sem var kominn í Búkarest fíling, hefur svarað þessari skyndilegu breytingu með harkalegum mótmælum í formi heiftarlegra strengja og nuddsári. Samningaviðræður standa yfir en ég er ekki vongóður.
Stórkostlegt að sjá ástandið á Íslandi nú í dag. Frábært alveg. Átti áhugavert samtal samt við einn Pólverja sem skildi ekkert í þessu kvarti okkar. Jújú við skuldum helling, en lífsgæðin eru fjandi fín og útlitið ágætt. Ég er fullur vonar að venju. Er þó ekki vongóður fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Gæti trúað að hún springi á þessu ári. erfitt að vera í samstarfi og vera ósammála um stærsta málið.
Ákaflega góður maður kom með gríðarlega góðan punkt núna um daginn. Benti á að síðastliðna 9 mánuði eru búnar að vera þrjár ríkisstjórnir sem allar eiga það sameiginlegt að þjást af gríðarlegri ákvarðanafælni. Allar eiga þær það sameiginlegt að Rauð Sól hefur haft mest áhrif.
Pæling?
Æi nenni samt ekki í stjórnmála þrugl. Mér leiðast stjórnmál. Allt eins. Allir ljúga, allir svíkja, allir sökka.
Hló gríðarlega þegar ég horfði á landsleikinn í handbolta á móti testicles. Merkilegt að sjá sólina blinda landsliðið og þá helst sófadýrið. Minnti mig óneitanlega á höll sem við æfðum í út í Þýskalandi eitt sumarið. Þá var svitakirtillinn Halldór Jóhann með okkur í liði. Þar sem maður blindaðist reglulega út af sólinni skapaðist gríðarlega hættulegt ástand eftir að svitakirtillinn hafði hlaupið tignarlega um salinn skvettandi lítrum af svita á gólfið. Ekki hjálpaði 50° hiti sem var þarna inni. Menn fljúgandi á hausinn, blindir og komnir í hitamóksvímu. Að auki var einn leikmaðurinn á mála hjá einræðisherrum heimsins við það að búa til efnavopn með aðstoð eplasafa. Lyktin sem kom út úr rassgatinu á honum var oft notuð til að tæma búðir sem við vildum versla í. Sú lykt aftur á móti snérist gegn okkur þarna inn í gufubaðinu þar sem hitinn og rakinn magnaði hana upp. Fyrir vikið þurfti oft að breyta æfingu snögglega úr spili á stóran völl í stillt upp á teig, þeim meginn sem lyktin var ekki.
Fáránlegt alveg.
Nett gaman samt.
Byrja að vinna eftir slétta viku. Eftir það á ég aldrei frí. Verður sérstök breyting.
Er að sjá orð eða orðasamhengi sem ég hef stolið frá öðrum poppa upp á ótrúlegustu stöðum. Spurning hvort ég hefði átt að krefjast höfundarréttar yfir þessu?
SjibbÍ!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sumarið er tíminn....
Þriðjudagur, 16. júní 2009
Fulli Stebbi er fáviti og ég hata hann. Ekki meira um það.
Í fyrramálið fer ég til læknis. Fyrst fer ég í röntgen. Fæ þá að vita hvort að tveggja ára farsa í mínu lífi sé lokið. Neita því ekki að ég er ótrúlega spenntur. Ég er jafnvel svo spenntur að ég gæti hugsanlega þurft að skipta um buxur. Ef að allt fer vel verð ég líklegast kátasti ess ó bí-inn í heiminum. Ef þetta fer illa mun ég kaupa fimm hluti.
Kók í gleri.
Sápu.
Vasaklút.
Bensín.
Kveikjara.
Fer síðan með herleg heitin annað hvort niður í ráðhús eða inn á spítala.
Síðan styttist auðvitað í að ég fari að vinna. Byrja að vinna í lok mánaðar. Á varla til orð ég hlakka svo mikið til. Þetta gengur ekki mikið lengur. Er við það að farast úr leiða. Á líklegast eftir að væla yfir því að þurfa að vinna eftir rúma viku í vinnu, en mér er sama.
Er af einhverjum ástæðum á póstlista hjá Samfylkingunni. Hef ekki mikið álit á þeim flokk.
Í dag fékk ég póst frá þeim þar sem verið var að óska eftir umsóknum um framkvæmdarstjóra flokksins. Er að pæla í að sækja um. Gæti hreinlega verið virkilega gaman að sækja um. Gerast framkvæmdarstjóri flokksins. Gæti eflaust gert meiri skaða þar heldur en nokkur annar maður.
Reyndar þarf ég ekkert að skaða þann flokk. Hann sér um sig sjálfur.
Nú fara bíladagarnir að renna upp. Get ekki beðið.
Get ekki beðið eftir því að fela bílinn minn.
Get ekki beðið eftir því að setja slagbrand á hurðina.
Get ekki beðið eftir því að þora varla út úr húsi.
Get ekki beðið eftir allri unglingadrykkjunni.
Get ekki beðið eftir því að horfa upp á fólk murka lífið hvert úr öðru.
Get ekki beðið eftir því að ófrumlegt pakk sé með áreiti við lögregluna.
Get ekki beðið eftir því að komast ekki inn á skemmtistaði því að hurðin er pökkuð af 15 ára gelgjum, út-klíndar í framan eftir einhvern helvítis mótorhjóla sjömma sem fór inn á staðinn og þær vilja elta en komast ekki inn því að skilríkin sem systir þeirra á hreinlega virka ekki.
Kommon, ég gleymdi skilríkjunum heima, hleyptu mér inn... einmitt.
Halda þessar vangefnu tussur að dyraverðir séu fávitar? Þetta er ekki einhver brillíant afsökun sem þær fundu upp núna nýlega! Hún hefur verið notuð í áraraðir.
Nú þegar enginn notar peninga lengur til að borga fyrir neitt, notar bara debet/kredit kort þá er þessi afsökun hreinlega ógild, léleg og hreinlega úrelt. Þessar skinkur geta drifið sig yfir í Sjallann sem tekur glaður við öllum gestum í heimi.... svo lengi sem þeir eru ekki eldri en 25 ára.
Venjulega er þetta ekki mikið vandamál. Ein og ein undir aldri stúlka/strákur nær að lauma sér inn og svo verður víst að vera.
Um bíladagana gerist samt eitthvað. Of mikið af fólki kemur í bæinn með djöfulsins skrílslæti og dólg. Pirraðir dyraverðir geta hreinlega ekki ráðið við allt þetta pakk. Fyrir vikið sleppur óendanlega mikið af undir aldri liði þarna inn. Það sem verra er, dyraverðirnir eru of uppteknir að því að halda smurðu skinkunum út af staðnum að helvítis Hondu Civic tapparnir á hlýrabolnum komast upp með massífann dólg inn á staðnum. Labbandi utan í allt og alla leitandi sér að slagsmálum. Kreatínsteravöðvarnir búnir að gefa þessum aumingjum eitthvað falskt öryggi, aukið sjálfstraust og nú á að kvitta fyrir öll þau skipti sem þessum ræflum var strítt hér á árum áður fyrir að vera með lítið typpi eða hvað sem er. Fyrr eða síðar rekast þeir utan í annan Hondu Civic gaur og slagsmál brjóstast út. Dyraverðirnir rjúka af stað, skilja nördalega dyravörðinn eftir í hurðinni sem þorir ekki að standa upp í hárinu á neinum og er þarna bara út af því að hann vildi láta sér líða eins og hann væri eitthvað.
Hvað gerist?
Fullt af undir lögaldri pakki streymir inn. Dólgur, fylleríslæti og bölvað rugl tekur við inni á staðnum.
Maður flýr staðinn, enda búinn að fá nóg af söngvum úr Stundinni okkar og hvað bíður manns? Kabúl.
Allir hlýrabola tapparnir komnir í slag við lögguna/akureyringa/leðurjakkafíflin/þennan gaur sem horfði vitlaust á þá.
Það sorglega er að hérna fyrir ofan var ég að lýsa síðustu bíladögum sem ég var á.
Vá hvað mig hlakkar til.
Hlakka mest til þegar allir þessir Selfoss og Keflavíkur pappakassar taka sinn ofborgaða bíl út úr bænum og „krúsa" heim til sín þar sem þeir geta stundað kynferðismök með systrum og frænkum sínum án þess að skemmileggja þennan annars fína bæ.
Sjibbí!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Það sem fær mig til að hlæja...
Föstudagur, 12. júní 2009
Það er ótrúlega margt sem fær mig til að hlæja. Þegar ég er stressaður hlæ ég meira ein góðu hófu gegnir. Þegar ég er afslappaður hlæ ég líka í full miklu magni. Mér finnst gaman að hlæja. Ég hef gaman að hlutum sem... hlæja mig?
Númer eitt er að sjálfsögðu lítill krakki sem dettur í hálku fyrir framan alla vini sína. Ég veit ekki af hverju en mér finnst það fyndið.
Þegar einhver verður óvart fyrir sársauka. T.d. fær bolta þrisvar í röð í magann. Ég hlæ dátt.
Þegar gamall maður á göngugrind fær yfir sig vatnsbunu úr slöngu. Extra mikill hlátur ef það er ég sem held á slöngunni og fylgi manninum með vatnsbununni á meðan hann reynir að "forða sér" í burtu.
Brútal vakning fær mig alltaf til að hlæja.
Þegar hlaupið er á glerhurð, klassík.
Vandræðaleg myndbönd sem beinast ekki gegn mér. Þar að segja skrítnir dansar og annað slíkt.
Besti leikur í heiminum, sem við félagarnir spilum þegar við fáum okkur í augað. Gæti trúað að einhver útgáfa af þessum leik hafi verið spilaður í Byrginu þegar Gummi drottnaði yfir staðnum.
Fyndnar bíómyndir og fyndnir þættir er gefið að fær mig til að hlæja.
Ekkert að þessum atriðum fær mig þó jafn mikið til að hlæja og sú staðreynd að Ronaldo er líklegast á leiðinni frá Man Utd. Mann fýlan sem lét Fletcher líta allt of vel út. Nei ég get ekki annað sagt en að ég er kátur, gríðarlega kátur með þessar fréttir. Mun hins vegar hefja þriggja daga þunglyndi ef þetta gengur ekki eftir.
Á þessari síðu minni hef ég lýst tveimur Stebbum sem sífellt takast á. Dag Stebbi og kvöld Stebbi. Fyrir utan þá tvö þöngulhausa eru tveir aðrir Stebbar sem í raun takast mun harkalegar á. Edrú-Stebbi og drukkni Stebbi. Egó Stebbi (ég) er mjög ánægður með edrú Stebba. Edrú Stebbi er góður maður. Maður orða sinna. Veit hvenær hann á að þegja og hvenær hann á að haga sér. Þekkir muninn á réttu og röngu. Drukkni Stebbi er versti óvinur edrú Stebba. Drukkni Stebbi hefur gert ítrekaðar tilraunir til að eyðileggja hið góða mannorð sem edrú Stebbi hefur byggt sér upp. Tekur kolrangar ákvarðanir og skilur eftir sig slóð eyðileggingar. Myndrænar og bókstafslegar. Allt sem edrú Stebbi þarf að gjalda fyrir í hinu daglega lífi er verk drukkna Stebba. En drukkni Stebbi á sér spínat.
Drukkni Stebbi á Tequila er dæmi um hið vonda sem býr í okkur öllum. Svona eins konar ofurhlaðinn vondur maður. Ekki ólíkur Super Shredder (var í Turtles fyrir þá sem eru fávitar) gerði vondan mann ákaflega vondan. Drukkni Stebbi fær því sjaldnast að fara út að leika sér. Oftast er það edrú Stebbi sem ræður ferðinni. En líkt og miðnætti er fyrir drauga er hálf fjögur tími drukkna Stebba. Því ber að vara sig á milli hálf fjögur og fimm á drukkna Stebba.
Ástæðan fyrir því að ég set inn þessa aðvörun er sú að fyrst ég hafði ekki efni á að fara suður um helgina er allt útlit fyrir að laugardagskvöldið verði mér hættulegt. Hef heyrt fréttir af því að drukkni Stebbi ætli sér á kreik. Edrú Stebbi ætlar aftur á móti ekki að hleypa honum á stjá. Bið því um bíl til afnota á laugardagskvöldið þar sem bíllinn minn er að gera sitt besta til að drepa mig.
Það er svo önnur saga. Það getur ekki verið eðlilegt að bíllinn spúi inn útblæstrinum! Ef ég er stopp á gatnamótum fyllist bíllinn af reyk. Eflaust mjög eðlilegt þegar farþegarnir opna í örvæntingu sinni gluggann og reyna að gusta þessu frá andliti sínu. Lúkkar rosalega vel fyrir mig þegar hópur af fólki horfir upp á þennan verknað. Það er þó verra eflaust þegar ég fer að útskýra fyrir fólkinu að ég hafi ekki verið að prumpa og að vinur minn sé ekki að berjast við að losna (reka)við K-vítamín lyktina úr andlitinu á sér.
Tókst að breyta mér í A manneskju í tvo daga. Horfði síðan áðan á NBA. Nú er klukkan nótt. Djöfull.
Ég er farinn að sofa.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Gott lag...
Miðvikudagur, 10. júní 2009
Var að horfa á slæman þátt.... þetta unaðslega lag kom í þættinum. Lagið var slæmt... textinn er bara fyndinn:
She met me at the Motel 6 for licks and tricks
Hit the floor, hit the skins, yo this chick was slick
I put my quarter in her slot and we got the bed shakin'
Makin' her climb the walls, call my name and get crazy
Next day she tryin' to play me like we're married or some such
Girl, please, I'd like to leave the area untouched
Plus we just met, I ain't promised a thing
You start talkin' 'bout a ring and I'm gone with the wind
Listen up: freakin's just recreation
Girls...you gotta chill out with your expectations
Tryin' to put me in your box and then flip the lid
Only a sucka gets stucka with a bitch an' kids
Listen up: freakin's just recreation
Girls...for the sport, not procreation
Tryin' to lure a brother in and then flip the script
Only a sucka gets stucka with a bitch an' kids
Now some ladies' nerves twitch when I say the word "bitch"
But I've never called 'em that unless they deserved it
They get mad! Enraged! They be rushin' the stage!
Whoa-whoa-whoa, hey, hold up, I got somethin' to say
A real woman got her own, house car and phone
She can love it or leave it, cause she can do it alone
Don't need your cash or checks, and won't crash your Lex
She won't harass your ex because she has respect
But a bitch uses her head to get in your bed
Wedding bells in her mind from the second you met
Now she's poppin' out babies, it's crazy, you signed a mortgage
Working two jobs all day to buy the porridge
And supply the diapers for them cryin' ass young'uns
And you can't even look at what you used to put your tongue in
She actin' all delicate, got you damn near celibate
Tryin' to feed her Tylenol, like "How bad can a headache get?"
She's at the mall tryin' to get jeans to fit her
While you're payin' for it all, playin' the babysitter
Yeah bitches is wack thinkin' 'at babies'll bond 'em
So save yourselves the drama, kids, and always use a condom!
Listen up: freakin's just recreation
Girls...don't wanna increase the population
So don't put me in your box and try to flip the lid
Only a sucka gets stucka with a bitch an' kids
Yeah, freakin' is what?
(posse members: recreation!
For the sport, not what?
(posse members: procreation!
Girl, I'll get up in your box but don't you flip the lid
(the music stops
Only a sucka gets stucka with a bitch and kids.
Eitthvað rapp lag bara.
Annars er ég með vógrís í auganu. Það er ömurlegt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Óreglumaður...
Þriðjudagur, 9. júní 2009
Ég er víst það sem kallast óreglumaður. Það er ekki jákvætt. Sérstaklega þar sem ég á að þjóna sem einhverskonar fyrirmynd. Að mörgu leiti mundi ég telja mig vera ágætis fyrirmynd. Heiðarlegur og vel upp alinn. Á mér þó mínar skuggahliðar sem kannski er óþarfi að fara út í.
Held að ég kenni dyravörslunni á Kaffi Ak um það klúður mitt. Neita því ekki að ég er nett pirraður. Það reddast þó.
Vonandi.
Annað sem er virkilega slæmur ávani hjá mér er svefnklúðrið mitt. Þar sem ég er mjög lélegur svefn maður hef ég það fyrir vana að vaka aðeins of lengi og fara aðeins of seint á fætur. Er þó að reyna að bæta það, er að gera mitt besta. Sem dæmi lagðist ég upp í rúm klukkan 12 í gærkvöldi og ótrúlegt en satt þá var ég sofnaður fljótlega eftir það. Æðiskæði.
Klukkan 02:17 vaknaði ég, svo hress og fokkin kátur. Reyndi að sofna aftur, no good. Alveg glaðvaknaður. Ekki séns í helvíti að ég gæti sofnað. Núna lítur heldur ekkert út fyrir að ég sé að ná að sofna. Klukkan er 06:12 og ekki séns að ég nái að sofna úr þessu. Er hættur að reyna. Ligg bara í sófanum að stara upp í loftið. Læt mér leiðast.
Þetta er ömurlegt.
Spurning reyndar um að vaka bara alveg fram á kvöld og sofna þá. Þarf hvortið er að vakna klukkan 10... ég verð eflaust lifandi á kaffi fram eftir degi.
Fáránlegt.
Fór út á laugardagskvöldið. Veit ekki alveg af hverju. Held að þessi þorsti minn stafi aðalega af því að ég læt mér leiðast alla vikuna og get hreinlega ekki beðið eftir því að komast út á meðal fólks. Náði að snúa upp á hendina á Þorgeiri að koma með mér. Ætluðum að vera ógæfumenn og fara á Mongó.... hann var lokaður. Fórum því á Karó... sofnuðum næstum því í sófanum þar. Röltum því niður í bæ og settumst á stól fyrir utan Amor. Helvíti fínt. Þar til ákveðin manneskja mætti til mín með ákveðna flösku sem hún hafði stolið og sturtað var ofan í mig ógeðinu. Fyrir það fyrsta er þetta á bannlista hjá mér, í öðru lagi er þetta bara ógeðslegt.
Fórum síðan yfir á Kaffi helvíti til að taka þátt í lukkuhjólinu, tveir unnu. Ég er maður á bótum þannig að ég nýtti mér bara sigurinn hjá þeim.
Varð fyrir kynferðislegri árás frá pápa gamla á Kaffi Helvíti. Hann vann þann bardaga... þarf að slá hann utan undir við fyrsta færi.
Ég hata Kaffi Helvíti.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
25 ára....
Sunnudagur, 7. júní 2009
Þegar ég varð tvítugur á sínum tíma fór ég í netta tilvistarkreppu. Skrifaði meðal annars þessi orð á Njallann:
Merkilegur hlutur þessi tími maður! (hljómar eins og hasshausasetning)
Þetta er alveg merkilegt hvað þessi tími flýgur frá manni! allt í einu bara breytist allt, allt í einu er Sigga Beinteins orðin gömul, Harry Potter kominn í mútur, Hermoine komin með brjóst og skrákurinn (ég) að verða tvítugur á morgun...eða já eftir tæpar 50 min. ég fæddist einmitt akkúrat á slaginu 00:00 krípí fokk!
Óhætt að segja að tilvistarkreppan sem kom yfir mig þegar ég varð 25 ára náði nýju hámarki. Grátandi, rífandi í hárið á mér, liggjandi í fósturstellingunni undir rúminu mínu og neitaði að koma fram. Undir lokin tókst mér þó að hafa mig á lappir og horfa framan í heiminn. Aðeins til þess að bresta í grát og plokka af mér bringuhárið mitt.
Að verða 25 ára er skrítinn hornsteinn. Fullt af hlutum sem maður er orðinn of gamall til að gera. Sjallinn sem dæmi, ég er orðinn of gamall til að fara í hann. Aldurstakmarkið þar er 15-25 ára. Ég sætti mig við það og hverf því á braut og skil þann stað eftir í höndum allra 15 ára krakkana sem hafa yfirtekið hann.
Skemmtanalífið í heild sinni hefur breyst allt í einu eftir að ég varð 25 ára. Fyrir afmælið þá var mér slétt sama um allt og alla hvað þetta varðaði. Núna eftir afmælið.... þá er mér ennþá slétt sama en fer varlegra með það.
Þetta er langt frá því að vera sældarlíf. Maður á að vera ákveðið fordæmi og sýna aga hvað ýmislegt varðar en persóna mín er svo takmörkuð að því leiti. 25 ára á maður að vera búinn að velja sér starfsframa og festa ráð sitt segja sumir. Æi er það?
Er samt kominn með netta löngun í að slaka vel á og svona en á meðan ég er í þessu sjúkraleyfi hef ég bara nákvæmlega ekkert að gera. Sem dæmi í gærkvöldi var Sveindís að vinna fram eftir nóttu og ég einn heima. Með væl tókst mér að draga Þorgeir með mér niður í svaðið.
Að sitja heima hjá sér meira og minna alla daga og horfa út í loftið er bara engan veginn góð skemmtun. Get ekki beðið eftir því að fara að vinna aftur. Síðan er það skóli, smá vinna og þjálfun á næsta ári þannig að næsti vetur verður skárri heldur en þessi síðasti vetur og þessi sumarbyrjun. Þetta er ekki hægt hvað þetta er leiðinlegt. Hef komið mér upp mjög sérstökum áhugamálum. Eitt er tildæmis að telja rimlana í rimlagardínunni og komast að því hver heildartalan er. Er við það að festast í guiding light og um daginn náði ég í fyrsta sinn árangri í því að græða punghár á bringuna á mér.
Eftir tveggja ára aumingjadóm út af þessari löpp er ég hreinlega orðinn latur. Það að ganga frá inn í uppþvottavél er fyrir mér bara hreint helvíti. Ég var einu sinni svo fullur af orku, en núna er það að pikka inn einhver orð á skitna síðu orðið allt of mikið mál. Þarf t.d. að taka mér vatnspásu bráðlega.
Hlakka ekkert eðlilega mikið til að ljúka þessum kafla í lífi mínu. Held að ég geti sagt með öryggi að löppin hefur aldrei verið betri síðan ég byrjaði í þessu stússi öllu og get hreinlega ekki beðið eftir því að fá grænt ljós hjá lækninum.
En núna þarf ég að leggja mig eftir þessa gríðarlegu færslu... tók á en með herkjum tókst mér að draga sjálfan mig í gegnum þetta.
Sjibbí!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nei hvaða vitleysa....
Miðvikudagur, 13. maí 2009
Horfði á Leno í kvöld, eins og oft áður. Óvenju fyndinn þáttur. Verst var þó þegar hann kynnti til leiks einhvern rappara sem bar heitið Soulja Boy. Ég sé hvað hann gerði þarna.... Soulja Boy... svona hermannsdrengur. Síðan byrjaði lagið... ég veit það ekki.
Ég er gamall rapp áhlustari og þegar mér finnst ég ekki vera í tengingu við uppruna minn smelli ég einu rapplagi í hlustun og læt mig dreyma um hversu harður ég væri ef ég væri gangstahh!
Fyrir vikið leyfi ég mér að hafa einhverja skoðun á gæðum rappsins...
Ætla að setja hérna fram nokkrar línur úr laginu....
I need you in my life, yeah all day everyday I need ya
And every time I see ya my feelings get deeper
I miss ya, I miss ya, I really wanna kiss you but I can't
Six, seven, eight, triple nine, eight, two, one, two
Baby you know that I miss you, I wanna get with you tonight
But I cannot baby girl and that's the issue
Girl you know I miss you, I just wanna kiss you
But I can't right now so baby kiss me thru the phone, I'll see you later on
Kiss me thru the phone, see you when I get home
Þetta lag var sungið með væmni rödd, fingurkossum, sólgleraugum og gull skilti framan á "rapparanum"
Ég bara gat ekki verið sammála meistara Leno að kalla þetta rapp.... fyrir mér var þetta meira svona.... tjahh.... píkupopp eitthvað.... mér finnst kjánalegt að kalla einhvern rappara bara fyrir það að vera svartur, með sólgleraugu og "bling" framan á sér.
Hafði hugsað mér að setja inn textabút úr laginu B.I.B.L.E. sem er að mínu mati eitt besta rapp lag allra tíma. Ekki týbískt svona glæparapp og virkilega flott lag.
Ég get ekki með góðri samvisku flokkað þetta tvennt saman.
Jæja...
Helgin stefnir í viðbjóð. Þjálfarateitið verður loksins framkvæmt, þar sem Skáið er farið suður (og þar með dáið fyrir mér) sit ég uppi með Hringvöðvann og pápa.... sé ekki fyrir mér að þetta endi vel. Sem betur fer er litli kútur og góður maður á staðnum þannig að ég sé ekki fram á hreinan viðbjóð. Sé þó fram á eitthvað stig af anda.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)



gattin